Aðalfundur Foreldrafélagsins Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 02 september 2010 16:06

adalfund

Smelltu á myndina til að sjá nánar dagskrá

 
Kosning fulltrúa í Skólaráð Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 02 september 2010 16:03

kosnfulltr

Smelltu á myndina til að sjá nánar dagskrá

 
Um námskynningar, útigæslu og hljóðbækur Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 01 september 2010 19:33

Eftirfarandi til upplýsingar:

Námskynningar í 1. -10. bekk fara fram í öllum árgöngum 16. september kl. 15.00. Kynningin fer fram í heimastofum viðkomandi bekkjardeilda.

Varðandi útigæslu í frímínútum sjá tveir starfsmenn skóla um gæsluna. Í hádegishléi mun einn kennari að auki sinna því starfi.

Varðandi námsefni viljum við benda á hljóðbækur á vef Námsgagnastofnunar, http://nams.is/hljodbaekur/ . Án endurgjalds er þar hægt að hala niður námsbókum í flestum námsgreinum sem henta öllum nemendum.

Skólastarfið hefur farið vel af stað og vonumst við eftir farsælu samstarfi í vetur.

Stjórnendur

 
Frá skólastjórnendum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 23 ágúst 2010 15:57

Kæru nemendur og foreldrar/ forráðamenn.
Velkomin til starfa og bestu óskir um ánægjulegt skólaár.
Starfsfólk skólans ásamt fulltrúum foreldra munu í vetur  vinna að gerð starfsáætlunar um samstarf heimilis og skóla.

Markmiðið er m.a. að:

Byggja upp gagnkvæmt traust og jákvætt viðhorf til skólasamfélagsins.
Finna leiðir sem veita foreldrum aukna hlutdeild í velferð barna sinna.

Grunnskólar í hverfi 2 vinna í vetur að bættu námsmati undir stjórn Ingvars Sigurgeirssonar.                   

Markmiðið er m.a. að:

Lesa meira...
 
Skólasetning 2010 - 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 10 ágúst 2010 16:31

Mæting nemenda mánudaginn 23.ágúst 2010

8. – 10. bekkur kl. 9:00
5. – 7. bekkur kl. 10:00
2. – 4. bekkur kl. 11:00

Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24.ágúst.

Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl ásamt foreldrum dagana  23. og  24. ágúst.  Kennsla nemenda í 1.bekk hefst miðvikudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá.

Starfsmannafundur
Fyrsti starfsmannafundur skólaársins 2010-2011 verður mánudaginn 16. ágúst kl. 9:00.


 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 18

Viðburðadagatal

September 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Á döfinni

fös 10.sep kl. 08:10 - 12:30
5. bekkur í gróðursetningu á Úlfljótsvatni
fim 16.sep kl. 15:00 - 17:00
Námsefniskynningar í 1. -10. bekk
Clicky Web Analytics